|
|
29.05.2006 15:58:46 / snædís
ææ sorry Eva Dís mín...ég nennti ekki að bíða eftir svari frá
ykkur 
Tékkið á þessu
http://pjattpikurnar.bloggar.is/
og gömlu færslurnar hér hverfa hvort eð er svo að
það skiptir varla máli 
»
29.05.2006 13:20:58 / snædís
hvað segiði um að við prófum að færa þetta ofurgóðablogg okkar á
þetta bloggar.is...
það virkar allavega mjög flott svona hjá þeim sem að ég er búin að
sjá 
Reyndar held ég að það sé ekki hægt að hafa svona að hver
okkar hafi sér aðgang en það er þá bara hægt að kvitta í lokin á
hverri færslu...er þaggi 
Allavega...tékkið á'essu....ég skal færa ef þið samþykkið það

»
26.05.2006 22:37:35 / Eva Dís
Jebb...Lucas Prata - And she said... sumarlagið í ár...sumarskap
hér á ferð!
Já fólk...ég var um það bil að enda á að horfa á eina af
leiðinlegustu myndum sögunnar, American Dreamz...ussuss....að hann
Hugh minn hafi samþykkt þetta... Fyrir ofan okkur til hliðar sat
síðan skuggalegur náungi, frá honum komu miður falleg hljóð, ekki
alveg viss ennþá hvort hann var að fá það eða drepast....skemmtileg
tilhugsun hvort tveggja ekki satt...
Jæja...hef náð nokkrum framförum í sambandi við roðamaurabönum,
verst að þeir hafa líka þónokkuð bætt hertækni sína...ekki
gott...
Annars hef ég engu við þetta blogg að bæta, enskupróf búið, gekk
vel , félagsfræðin á mánudaginn, úff... En svona til að lyfta
manni aðeins upp í prófatíðinni, tékkið þá á þessu: (æi
vesen, þið þurfið víst að copy-a linkana til að geta séð þetta)
http://video.google.com/videoplay?docid=3719908412199702049 þetta
munu vera fyndnir kettir hehe
http://www.youtube.com/watch?v=XyY3VMKPaFM&search=cute%20girl cute
girl, textinn er fyrir ofan myndina.
Félagsfræðin kallar... 
»
26.05.2006 08:32:10 / snædís
ég er að fara að æla af stressi....langaði bara að deila
því með ykkur 
Anyway..er farin í eðlisfræðipróf...þið megið alveg biðja fyrir
mér sko 
»
24.05.2006 18:08:40 / Eva Dís
“But maybe I'm
crazy
Maybe you're crazy
Maybe we're crazy
Probably”
Jamm...ja allavega er
ég orðin alveg crazy...á próflestri...og prófin ekki einu sinni
byrjuð...oshosh...ekki viss hvort ég hafi þetta af...
Sama og ekkert á
döfinni nema próf...veit ekki alveg hvað ég er því að reyna að tuða
hérna inná...
En allavega var djamm
um síðustu helgi...ég, Sasa, Snæa, Hildur og Íris (já hún Íris lét
sig hafa það að koma norður að hitta okkur, lasin greyið, en alltaf
jafn gaman að sjá þessa elsku) skelltum okkur á Í svörtum
fötum...að sjálfsögðu var ballið haldið á hinu heimanu okkar...sem
nefnist öðru nafni Sjallinn... Við skemmtum okkur alveg konunglega
flestar, (Snædís og Íris eitthvað þreytulegar greyin), sumir fundu
sér annan og skemmtilegri félagsskap, förum ekki nánar út í það
hehe. Eftir á voru ræddar misgáfaðar leiðir til að fá númerið hjá
viðkomandi...hehe sumir voru víst alveg að missa þolinmæðina á
ruglinu...En allavega var þetta bara alveg fínasta lokadjamm,
djammpásan nebbla komin á í bili...
Mamma mín varð stór
stúlka og útskrifaðist úr VMA 20. maí, og sama dag átti amma
afmæli, til hamingju með það báðar tvær! 
Eurovision er
búin...draumurinn búinn ...ég ætla að hætta að vera
Evróplingur...greyið Silvía, búin að vera sér og okkur öllum til
fyrirmyndar, ofsalega dugleg, og svo bara voga hinir Evróplingarnir
að kjósa hana ekki...vitiði ég er svo hneyksluð að ég veit bara
hvorki upp né niður í neinu sko.... Hehe nei oki þessi brandari var
orðin helvíti þreyttur, enginn bjóst nokkurn tíma við að hún kæmist
uppúr þessari undankeppni, hættiði þessari fýlu... Atriðið stóð
ekki alveg undir væntingum, en er nú samt stolt af henni fyrir að
halda haus eftir allt púið á sviðinu, hvað er fólk að pæla? Annars
er ég bara nokkuð sátt við úrslitin, Finnar áttu sigurinn skilið,
en lagið mitt var nú samt alveg tvímælalaust frá Rúmeníu...og
nei...ekki af því að það var á ítölsku eins og allir halda, (næ
ekki ennþá uppí það, við skulum bara syngja á spænsku eða norsku á
næsta ári), nei, einfaldlega vegna þess að lagið er æði!

Tornero
tornero
La mia vita ti daro
Tornerai tornerai
Mia per sempre tu sarai
Alveg málið! 
Sumarið að koma,
hitinn næstum óbærilegur, ég tók alveg helvíti mikinn lit útá palli
áðan...Nei bíddu, æ já, gleymdi, átti að skila kveðju til ykkar frá
maí, hann sendi mér póstkort frá Hawaí, janúar skuldaði honum
nokkrar vaktir þannig að hann ákvað að taka sér smá frí, janúar
alveg í fílingnum núna sko...
Round 2 of the
redant-war has begun! Og já, ég veit, það er kalt, og það er
bara möl fyrir utan gluggann hjá mér, og þá eiga ekki að vera
neinir roðamaurar í glugganum mínum, ég veit, það er búið að segja
mér þetta allt, geðlækninum tókst loks í þriðja tímanum að fá mig
til að segja: “Það eru engir roðamaurar í glugganum mínum, þetta
eru bara ofsjónir vegna gríðarlegrar skordýrafóbíu minnar!”, æi ég
nennti ekki að mæta í fjórða tímann hjá honum og sagði bara það sem
hann vildi heyra, og fór svo beinustu leið heim og hélt áfram að
drepa roðamaura. Setti svona límbandsgildru í gluggann, strax eftir
1 sólarhring lágu hræin út um allt. Heilu hersveitirnar þurrkuðust
út, en þó ekki allar, nokkir komust þó upp á náttborðið, þarna
gilti reglan Survival of the fittest!...eða þangað til ég drap þá
með köldu rauðu blóði á hvíta náttborðinu mínu...not so white
anymore...euuwww
Smáauglýsing: Ég óska
eftir rúmi, helst 120x200. Ef þú átt þannig til sölu eða veist um,
kommentaðu, ég lofa að gefa því gott heimili og mikla ást!
(heimsóknatímar fyrri eiganda eru leyfðir...jafnvel hægt að
semja um að rifja upp gömul kynni ef svo ber
undir...grr .....ahahahah....hey mér fannst þetta allavega
fyndið)! En svona í alvöru talað þá vantar mig rúm, veistu um?
Búlgaría: 97
dagar!!
Heimurinn er
lítill...komst að því að hann fer minnkandi...þannig er nú það
hehe 
Gangi ykkur vel í prófunum skvísez...sérstaklega með þetta
eðlisfræðihelvíti...you can do it!
»
19.05.2006 17:48:06 / Hrefna
VIGGÓ VIÐUTAN ! HAHAHAHAHAHAHAHA
ÞAÐ ER KÆRASTINN MINN
»
17.05.2006 16:42:32 / Hrefna
Hæ ég verð bara að skrifa í dag líka.
Þegar ég kom heim stóð Salka ábúðarfull fyrir framan
útidyrarhurðina og naut sólarinnar. Ég losaði um ólina og
hleypti henni inn, sagði ''hvar er beinið þitt.'' Hún
snarsnérist í hringi og fann loks beyglaða flösku útí horni, horfði
á mig með sælusvip og otaði henni að mér.
Bara smá innskot úr hversdagsleikanum, en nú er ég að fara á
Kajak með útivist, eins og Snæa.
tónlistarkveðjur (af því að ég var í píanótíma)....rugl.....
Hrefna
»
16.05.2006 16:20:31 / Hrefna
Góðan daginn, þá er dagur á máladeildinni búinn. Var samt lengur
þar sem ég lenti í umræðum við Árný enskukennara og Völu og Sezzý,
stórskemmtilegar umræður um Sylvíu Plath(rithöfundur), heimspeki og
elliheimili Núna sit ég við tölvuna og hlusta á Rómeó og
Júlíu meðan ég blogga, elska þetta lag.....úps maður á kannski ekki
að setja svona væmnar staðhæfingar inn á bloggið, þið verðir að
leiðbeina mér ég er ný í þessum geira.
Þá skrifa ég ekki meira í bili,
Hrefna
»
15.05.2006 18:27:04 / Hulda
jæja girlur....hvernig lýst ykkur á smá júróvision-stelpu-party?
Var að spá hvort þið væruð ekki til í að hittast á
fimmtudagskveldið og fylgjast með henni Silvíu okkar gera allt
vitlaust Svo datt okkur Snædísi í hug að gera þetta bara að
almennilegu stelpukvöldi og elda saman og sonna....hafa það
nice....ekki veitir af - prófin að fara að byra
En allavega hvernig lýst ykkur á og hverjir eru mem...???
»
12.05.2006 19:01:45 / Hrefna
Hæ, vá það er stór dagur í lífi mínu í dag! fyrsta bloggfærslan
mín. Ég veit ekki hvað ég á að segja nema það að ég er mjög
ánægð með þetta, hehe.Það var kaldur dagur í dag, samt opnaði ég
gluggana í skólanum til að hleypa sólinni inn til þessa að fá d
vitamín. Áðan var ég samt að deyja úr leiðindum en viti menn ég
kveikti á Queen og fór að dansa þá varð ég mjög hress,´ætli ég fari
ekki að þjóta, það heyrist don't stop me now úr
græjunum........................................................................................................
...........................
bæ!................................Hrefna á flugi
»
09.05.2006 13:32:32 / snædís
..hún á afmæli í dag
hún á afmæli hún Hulda
Hún á afmæli í dag
Já það er rétt gott fólk hún
Hulda skvísa er orðn 19 ára hvorki meira nér minna

Bara rétt að skella afmæliskveðju hingað inn.....
Til hamingju með daginn sæta.... og svo borðum við yfir okkur í
kvöld  Annars er glænýtt blogg frá Evu
Dís hérna fyrir neðan 

»
08.05.2006 12:32:21 / Eva Dís
Jæja gott fólk...svona læri ég fyrir
stærðfræðipróf....
Allavega...hvað er búið að vera uppi?
Jú...fyrir rúmri viku var bekkjarpartýið okkar haldið...frekar
misheppnað dæmi og um hálfeittleytið var húsið tómt...sem betur fer
í heimahúsi þannig að ekkert var borgað í leigu. Við héldum því
nokkur út í sveit í annað partý...sem vann okkar partý í
sökkleika...þannig að rúnthringurinn var rifjaður upp...sem var
reyndar bara fínt...endaði kvöldið semsagt á rúntinum í góðra vina
hópi...kózý man...
Brjálað að gera þessa dagana...hópverkefnum og fyrirlestrum
dælt í mann, kennararnir virðast halda að ef við höfum ekki
eitthvað skóladót fyrir stafni þá eigum við okkur bara ekkert líf
og leggjumst niður í þunglyndi...sem er reyndar alveg rétt...um
daginn þá leiddist mér alveg svakalega...þannig að ég tók bara upp
símann og hringdi í dönskukennarann minn...við spjölluðum saman um
alla heima og geima í rúman klukkutíma, að sjálfsögðu á dönsku,
hvað annað...og í lokin gaf hún mér svo aukaverkefni til að leysa
yfir helgina...hehe segi nú bara eins og hún Clueless-Cher mín...as
if....!!
Árshátíðin í vinnunni var um helgina...fyrir þá sem ekki vita
þá vinn ég í Pennanum Bókval, enda hef ég nú svör við öllu (nema
hvar Steini sé staddur, mér er alveg lífsins ómögulegt að svara
því). Reyndar held að enginn í vinnunni viti um þessa síðu, en ég
ætla nú samt að deila kvöldinu með ykkur hinum. Fyrst var
fyrirpartý heima hjá Valdísi, þar var svartur köttur...góð byrjun á
kvöldinu hmmm... Eftir það var mæting upp í Lón í Hrísalundi, þar
sem kræsingarnar voru bornar fram. Á meðan var farið með gamanmál,
að sjálfsögðu gat hún Valdís ekki þagað yfir puttasögunni, nú vita
allir í vinnunni, já og mamma og pabbi líka, að ég hafi beðið Lillu
um að...hmmm já.... En í kjölfarið
eignaðist ég maka, já, við Lilla ákváðum að hætta þessu veseni og
viðurkenna tilfinningar okkar, og við innsigluðum það með því að
gefa hvor annari ópalskot og Sjallamiða. Þetta var því alveg
makalaust gaman ha...nei bíddu, ég á maka (ahh...ekki að gera sig
eða?) Villi og Valdís tóku Litlu fluguna, Valdís bassi og
Villi sópran, svei mér þá ég held að nokkur glös hafi brotnað, svo
hátt fór hann! Og hann var bláedrú takið eftir. Eftir því sem
mjólkurglösin urðu fleiri fylgdu fleiri klósettferðir með í
kjölfarið...þannig að á endanum vorum við allt unga fólkið saman
komið inná kvennaklósettinu, Villi greyið fékk engu um það ráðið og
var dreginn þangað inn, enda eini strákurinn í hópnum, og hvað er
partý án Villa?? Kvennaklósett hafa víst skemmtileg áhrif á mann,
mjólkin áfram drukkin, og talið barst að brjóstahöldurum...minn var
ömurlegur, Söndru líka, en ein hafði fengið sér Victoria’s Secret í
USA, og að sjálfsögðu fengum við að finna...The sweetest thing
sagði satt, that’s why girls always go to the bathroom
together...honum Villa ofbauð þetta víst eitthvað, og við sáum bara
í hælana á honum á leiðinni út...já...svona er að vinna í
kvennaveldi Villi minn
Síðan lá leiðin í Sjallann, sem var alveg slatta
fullur...allir komust inn...meira að segja yngstu meðlimir hópsins,
sem var gott...síðan var meira djammað, hópurinn splittaðist, en ég
fann Hildi mína og við höfðum gaman saman. En hinar voru nú samt
lélegar að beila ha, vitið ekki að : Palli=stanslaust stuð
?
En
já, styttist í prófhelvítin...nei ég meina staðfestinguna á því að
maður hafi staðið sig vel á önninni...úps...skólaleiðinn að koma í
bakið á
mér...
En um næstu helgi er víst planað partý hjá gamla
bekknum mínum, 1-H, opið að ég held, meira auglýst síðar. Og svo er
Eurovison helgina þar á eftir, Í svörtum fötum í Sjallanum, en ég
er á leiðinlegum vinnutíma, þannig að ég sé til, reikna nú samt með
því að maður skelli sér bara. Annars held ég að ég verði nú bara að
viðurkenna það sjálf að þetta fer nú bara að verða gott sko, lofa
að fara að slaka á stelpur hehe
Ég held að ég hafi ekkert annað að blogga um en
djamm í þetta skiptið, nema þið viljið heyra meira um vinnunna og
skólann...? Neh...
Annars á hún Hulda afmæli á morgun, held að Greifaferð sé
plönuð, ég veit ekki hvað ég á að gefa henni, ætla að fara að eyða
restinni af hádeginu mínu í að velta mér upp úr því og pæla...sjáðu
Hulda hvað þú gerðir mér ha...
»
02.05.2006 20:13:24 / snædís
»
26.04.2006 17:22:43 / Eva Dís
"Vertu þú sjálfur,
gerðu það sem þú
vilt.
Vertu þú sjálfur,
eins og þú
ert.
Láttu það flakka,
dansaðu í
vindinum.
Faðmaðu heiminn, elskaðu. "
Jæja gott fólk...í tilefni af því að ég er officially hætt að
vera Geðvonskusvallari ákvað ég að skella nokkrum línum hérna
inná...bara svona til að láta ykkur vita hvað heimurinn er
fallegur...
Í
dag er mikill gleðidagur...við komumst að því að við erum
skólinn...ó já...við gáfum Jóni Má langt nef og héldum söngsal án
hans...fínn söngsalur...miklu skemmtilegra þegar það er
bannað...litli púkinn í manni kitlar svo í
magann.... En nú spyr maður sig...hver
er framtíð söngsalsins...ef einhver er?
Um
daginn bjargaði ég Gamla skóla frá stórbruna...enginn nema ég tók
eftir því að eldur hafði læst sig í servéttu sem varð brátt alelda
og bjó sig undir að smita jakkann við hliðina á sér...er ég hetja
eða hálfviti að hafa bjargað skólanum?? Spurning...
Næsta helgi er björt...það lítur út fyrir að ég fái djammið
mitt eftir allt saman...fullt af því wrarr...og þið sem yfirhöfuð
pælduð í að láta sjá ykkur á Spútnik...hvað er málið...eruði
alveg?? Hehe En já hitabylgjan
er á leiðinni...nær okkur á föstudaginn...sem þýðir bæjarferð ó
yeah...
Á
föstudagskvöldið er svo partý í Hrísalundinum...jú stelpur þið
ætlið sko víst að koma með mér!! 
Óvissuferð AFS verður á laugardeginum...við förum
í....neih...leyndó...aðeins svona VIP eins og ég vita
það...
Á
sunnudeginum verður svo loksins bekkjarpartýið okkar...en í þetta
skiptið verður það lokað...again...aðeins fyrir svona VIP eins og
mig....
Þess má til gamans geta að the redant war er enn í fullum
gangi...ég vann fyrstu lotuna og þurftu þeir því að hörfa um
tíma...fann einn uppreisnarsegg á náttborðinu í gær...hann var þar
ekki mikið lengur... Læt ykkur svo vita hvernig gengur...veit að
þið bíðið spennt...
Horfði á upptöku af síðasta 24 þætti í gær...hvert fór
rómantíkin? Michelle og Tony út úr myndinni, ég var farin að
treysta á Cloe og Edgar...en...úff...dramatíkin og spennan í
hámarki samt sem áður...
Veit að þessi punktur er svosem ekkert merkilegur nema fyrir
fíkla eins og mig...þá er þetta himnesk stórfrétt...já gott
fólk...með tilkomu nýrrar sykurskertrar kókómjólkur get ég nú
staðið stolt upp...og viðurkennt kókómjólkurfíkn mína...með aðeins
minna samviskubiti. Halló, ég heiti Eva Dís
og er kókómjólkuralki.
Læt tvo arfalélega
málshætti sem ég fann á netinu fylgja með...
Margur fer yfir Strikið - í
Kaupmannahöfn
Oft láta
bensínafgreiðslumenn dæluna ganga.
»
22.04.2006 21:45:13 / snædís
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|